Sagan okkar

Allt byrjaði í Róm
Við hjónin áttum okkar fyrsta stefnumót í Róm árið 2012, þegar Guðjón var þar í skiptinámi, að ljúka við meistaragráðu frá Copenhagen Business School.
Eftir að hafa ráfað um borgina langt fram á nótt, þar sem við sýndum hvort öðru uppáhaldsstaðina okkar, vorum við bæði kolfallin fyrir hvort öðru og það var ekki aftur snúið.
Þrátt fyrir að hafa verið uppáhaldsborg okkar beggja áður, á Róm nú sérstakan stað í hjörtum okkar, sem og Ítalía.

Aðstandendur Initalia
Við höfum bæði dvalið langdvölum á Ítalíu við leik og störf. Jóhanna er með MA frá La Sapienza í Róm í bókmennta- og tungumálafræði og MA í íslenskri málfræði frá HÍ, kenndi ítölsku í HÍ og hefur kennt ítölsku við MH í 20 ár.
Saman höfum við hjónin skipulagt fjölda ferða um Ítalíu fyrir einstaklinga og hópa, kóra- og kennaraferðir, auk veislna og brúðkaupa, m.a. okkar eigið.
