Skip to content

Cart

Your cart is empty

Sælkeraverslun Initalia

Valdar sælkeravörur frá Ítalíu, frá framleiðendum og svæðum sem við þekkjum persónulega. Upplifðu bragðið af Ítalíu heima hjá þér!

Ólíkar ólífur, einstök heild.

Sérkenni ólífuolíunnar frá Brecce Rosse verða til þegar 3 - 4 ólíkum ólífutegundum er blandað saman. Hver tegund leggur til sína bragðeiginleika og saman mynda þær einstaka heild.

Brecce Rosse · Gubbio, Umbría

Frá ólífutrénu í flöskuna á sama degi

Brecce Rosse er lítið fjölskyldufyrirtæki sem framleiðir ólífuolíu í takmörkuðu magni. Ólífurnar vaxa í steinefnaríkum jarðvegi án aukaefna og eru pressaðar örfáum stundum eftir tínslu, svo ferskleikinn haldist.

Nær allir helstu veitingastaðirnir í Gubbio og nágrenni elda með Brecce Rosse.

Gott pasta byrjar á hágæða hveiti

Il Re della Pasta notar eingöngu hágæða durum hveiti frá Piemonte og Marche á Ítalíu.

Il Re della Pasta · Gragnano, Kampanía

Pasta frá höfuðstað pastans

Il Re della Pasta framleiðir pasta í Gragnano, þar sem einstök aðferð við að framleiða og þurrka pasta var fundin upp á 14. öld. Eingöngu er notað 100% durum hveiti úr helstu matarhéruðum Ítalíu og lindarvatn úr Lattari fjöllunum.

Deigið er bronsskorið, svo yfirborðið verður örlítið hrjúft og sósan bindist vel við pastað. Il Re della Pasta ber IGP-stimpil Gragnano, sem verndar þessa aldagömlu hefð.

Ræktaðir af alúð, valdir fyrir bragðið.

Góðir tómatar eru lykilundirstaða góðrar ítalskrar sósu. Alúð við ræktun og vandað val á tómötunum tryggja að náttúrulegt bragð þeirra að nái að njóta sín til fulls, jafnvel í einföldustu réttum.

Il Re della Pasta · Gragnano, Kampanía

Tómatar valdir með pastað í huga

Il Re della Pasta vinnur náið með helstu tómataframleiðendum á suður Ítalíu við að velja bestu tómatana fyrir pastað þeirra.

Uppskriftir

Pasta all’Amatriciana

Pasta all’Amatriciana

Klassískur réttur frá bænum Amatrice: stökkt guanciale, tómatar, pecorino og ögn af chili. Einföld en bragðmikil hráefni og útkoman er engu lík.

Sjá uppskrift
Pasta alla Gricia (mamma rómversku pastaréttanna)

Pasta alla Gricia (mamma rómversku pastaréttanna)

Oft kölluð móðir rómversku pastaréttanna. Cacio e pepe, Amatriciana og Carbonara byggja öll að miklu leyti á þessari uppskrift.

Sjá uppskrift
Pasta Cacio e pepe

Pasta Cacio e pepe

Hinn rómaði rómverski pastaréttur úr aðeins þremur hráefnum: pasta, pecorino og svartur pipar. Einföld uppskrift en bragðmikil niðurstaða.

Sjá uppskrift
Pasta Carbonara

Pasta Carbonara

Klassískt Pasta Carbonara eins og Rómverjar elda það. Enginn rjómi, aðeins fáein hráefni og mikið bragð.

Sjá uppskrift