Pasta all’Amatriciana
Klassískur réttur frá bænum Amatrice: stökkt guanciale, tómatar, pecorino og ögn af chili. Einföld en bragðmikil hráefni og útkoman er engu lík.
Sjá uppskrift

Brecce Rosse · Gubbio, Umbría
Frá ólífutrénu í flöskuna á sama degi
Brecce Rosse er lítið fjölskyldufyrirtæki sem framleiðir ólífuolíu í takmörkuðu magni. Ólífurnar vaxa í steinefnaríkum jarðvegi án aukaefna og eru pressaðar örfáum stundum eftir tínslu, svo ferskleikinn haldist.
Nær allir helstu veitingastaðirnir í Gubbio og nágrenni elda með Brecce Rosse.

Il Re della Pasta · Gragnano, Kampanía
Pasta frá höfuðstað pastans
Il Re della Pasta framleiðir pasta í Gragnano, þar sem einstök aðferð við að framleiða og þurrka pasta var fundin upp á 14. öld. Eingöngu er notað 100% durum hveiti úr helstu matarhéruðum Ítalíu og lindarvatn úr Lattari fjöllunum.
Deigið er bronsskorið, svo yfirborðið verður örlítið hrjúft og sósan bindist vel við pastað. Il Re della Pasta ber IGP-stimpil Gragnano, sem verndar þessa aldagömlu hefð.

Il Re della Pasta · Gragnano, Kampanía
Tómatar valdir með pastað í huga
Il Re della Pasta vinnur náið með helstu tómataframleiðendum á suður Ítalíu við að velja bestu tómatana fyrir pastað þeirra.
Klassískur réttur frá bænum Amatrice: stökkt guanciale, tómatar, pecorino og ögn af chili. Einföld en bragðmikil hráefni og útkoman er engu lík.
Sjá uppskrift
Oft kölluð móðir rómversku pastaréttanna. Cacio e pepe, Amatriciana og Carbonara byggja öll að miklu leyti á þessari uppskrift.
Sjá uppskrift
Hinn rómaði rómverski pastaréttur úr aðeins þremur hráefnum: pasta, pecorino og svartur pipar. Einföld uppskrift en bragðmikil niðurstaða.
Sjá uppskrift
Klassískt Pasta Carbonara eins og Rómverjar elda það. Enginn rjómi, aðeins fáein hráefni og mikið bragð.
Sjá uppskrift