Skip to content

Cart

Your cart is empty

Napólíflóinn, Capri og Róm

17.–23. mars 2027

7 dagar

Beint flug með Icelandair

Flug út

FI 930 · KEF 08:20 → FCO 14:00

Flug heim

FI 931 · FCO 14:45 → KEF 18:40

Sjö dagar þar sem saga, náttúrufegurð og matarmenning Suður-Ítalíu fléttast saman. Við gistum fjórar nætur á fjögurra stjörnu Sheraton-hóteli við Napólí og skoðum Pompeii, pastabæinn Gragnano, Sorrento, eyjuna Capri og sjálfa Napólí.

Á leiðinni til Rómar heimsækjum við ævaforna fjallaþorpið Cori og smökkum vín frá vínekru í nágrenninu. Ferðinni lýkur með tveimur nóttum í Róm, skoðunarferð um helstu kennileiti og ekta rómverskum hádegisverði.
Ferðadagur: beint flug til Rómar og hótel við Napólí
Pompeii, Gragnano og Sorrento
Capri
Napólí
Fjallaþorpið Cori og vínsmökkun
Skoðunarferð um Róm

Smelltu á dagana hér fyrir neðan til að skoða dagskrá ferðarinnar.

Dagur 1 Ferðadagur: beint flug til Rómar og hótel við Napólí Skoða dag Loka degi
Ferðadagur: beint flug til Rómar og hótel við Napólí
Brottför í beinu flugi með Icelandair kl. 08:20 og áætluð lending í Róm kl. 14:00. Við söfnumst saman á flugvellinum og göngum saman í rútuna sem flytur okkur beint á hótelið okkar við Napólí. Við gerum ráð fyrir að vera komin á Sheraton-hótelið eftir um tvo og hálfan tíma.

Eftir komu fá gestir herbergin sín og geta slakað á í fallegu umhverfi hótelsins. Um kvöldið hittumst við í sameiginlegum kvöldverði á hótelinu, kynnumst og förum yfir næstu daga.

Innifalið: Kvöldverður með víni og vatni á hótelinu

Ferðadagur: beint flug til Rómar og hótel við Napólí
Dagur 2 Pompeii, Gragnano og Sorrento Skoða dag Loka degi
Pompeii, Gragnano og Sorrento
Eftir morgunverð höldum við til Pompeii og skoðum ótrúlega vel varðveittar minjar Rómaveldis í borginni sem fórst í gjóskugosi árið 79 e.Kr. Leiðsögumaður á vegum safnsins fylgir okkur um svæðið, með íslenskum túlki.

Þaðan höldum við til Gragnano, lítils fjallaþorps í hlíðum Napólíflóa sem kallað er höfuðstaður þurrkaða pastans, því þar var aðferðin fundin upp í byrjun 14. aldar. Við göngum um þennan sögufræga bæ og endum á yndislegum veitingastað í miðbænum þar sem við njótum hádegisverðar saman og fáum örugglega að smakka pastarétti.

Eftir hádegisverð höldum við til strandborgarinnar Sorrento, þangað sem við komum um kl. 15:00. Þar er frjáls tími til að njóta litla miðbæjarins með góðum veitingastöðum, börum og verslunum. Við höldum heim á hótel um kl. 18:00.

Innifalið: Aðgangur og leiðsögn í Pompeii með íslenskum túlki og hádegisverður með víni og vatni í Gragnano

Pompeii, Gragnano og Sorrento
Pompeii, Gragnano og Sorrento
Dagur 3 Capri Skoða dag Loka degi
Capri
Eftir morgunverð höldum við til hafnarinnar í Napólí og siglum til Capri, einnar af perlum Miðjarðarhafsins. Rómverskir keisarar, evrópskt aðalsfólk, sjófarendur, listamenn og ferðamenn hafa í aldanna rás sótt eyjuna heim til að upplifa einstaka náttúrufegurð og njóta lífsins.

Frá höfninni Marina Grande siglum við umhverfis eyjuna og virðum fyrir okkur stórbrotnar kletta- og bergmyndanir og strendur sem sjást best frá sjó. Ef vel viðrar sjáum við jafnvel Bláa hellinn, Grotta Azzurra.

Eftir siglinguna förum við með lítilli fjallalest upp í þorpið Capri, þekkt fyrir þröngar götur, skínandi hvít hús og fallega garða eins og Ágústínusargarðana, og njótum þar hádegisverðar. Síðan er frjáls tími. Þau sem vilja geta farið til Anacapri eða með stólalyftu upp á Monte Solaro og notið útsýnisins. Við hittumst við ferjuhöfnina um kl. 17:00 og höldum heim á hótel.

Innifalið: Sigling til og frá Capri og umhverfis eyjuna, fjallalest og hádegisverður með víni og vatni

Capri
Capri
Dagur 4 Napólí Skoða dag Loka degi
Napólí
Eftir morgunverð höldum við til Napólí og komum þangað um kl. 10:30. Við förum úr rútunni nálægt Piazza del Plebiscito, sem er mjög miðsvæðis, og förum í skoðunarferð með fararstjórum um helstu kennileiti og kynnumst magnaðri sögu borgarinnar.

Eftir gönguferðina er frjáls tími í Napólí til kl. 18:00. Þá hittist hópurinn á fyrirfram ákveðnum stað og gengur saman að rútunni. Við höldum heim á hótel og eftir það er frjáls tími.

Innifalið: Gönguferð um Napólí með fararstjórum

Napólí
Dagur 5 Fjallaþorpið Cori og vínsmökkun Skoða dag Loka degi
Fjallaþorpið Cori og vínsmökkun
Eftir morgunverð höldum við áleiðis til Rómar og stoppum á leiðinni í Cori, ævafornu þorpi í hæðum Lazio-héraðsins um 50 km suðaustur af Róm. Saga Cori nær aftur fyrir tíma Rómverja; þorpið byggðu upprunalega Latverjar, einn af frumbyggjaþjóðflokkum Mið-Ítalíu, og það var orðið vel þróuð borg á 7. öld f.Kr.

Staðarleiðsögumaður og fararstjórar leiða okkur í gegnum aldirnar og kynna okkur sögu Cori í gegnum minjar, hof og byggingar. Túlkað er jafnóðum á íslensku í hlustunartæki. Göngutúrinn tekur tæpa klukkustund.

Þaðan höldum við á vínekru í nágrenninu, borðum léttan hádegisverð og smökkum vín frá einum helsta vínframleiðanda Lazio. Svo er rúmlega klukkustundar akstur á hótelið okkar í Róm. Eftir innritun er frjáls tími.

Innifalið: Leiðsögn um Cori, vínsmökkun og léttur hádegisverður

Fjallaþorpið Cori og vínsmökkun
Dagur 6 Skoðunarferð um Róm Skoða dag Loka degi
Skoðunarferð um Róm
Eftir morgunverð förum við í skoðunarferð um Róm með fararstjórum, skoðum mörg helstu kennileiti borgarinnar eilífu og fræðumst um magnaða sögu hennar. Skoðunarferðinni lýkur á Piazza Navona um kl. 13:00.

Um kl. 13:30 sameinast hópurinn á veitingastað í nágrenni Vatíkansins og borðar saman síðbúinn hádegisverð að rómverskum hætti.

Innifalið: Skoðunarferð um Róm með íslenskri leiðsögn og hádegisverður með víni og vatni

Skoðunarferð um Róm
Skoðunarferð um Róm
Dagur 7 Heimferð Skoða dag Loka degi
Heimferð
Eftir morgunverð er frjáls tími. Litlar skutlur flytja ferðalanga á Fiumicino-flugvöll, sem er um 30–40 mínútna akstur frá hótelinu. Lagt er af stað frá hótelinu ekki seinna en kl. 11:00. Brottför heim er áætluð kl. 14:45.
Innifalið og upplýsingar
Verð á mann 349.000 kr. miðað við tvo í herbergi

Innifalið

  • Beint flug með Icelandair til Rómar, 23 kg taska og 10 kg handfarangur
  • Rútuferðir samkvæmt ferðalýsingu
  • Morgunverður á hótelum alla daga
  • 4 nætur á 4 stjörnu Sheraton-hóteli við Napólí
  • 2 nætur á 4 stjörnu hóteli miðsvæðis í Róm, skammt frá Vatíkaninu
  • Kvöldverður með víni og vatni fyrsta kvöldið á hótelinu við Napólí
  • Aðgangur að Pompeii og leiðsögn staðarleiðsögumanns með íslenskum túlki
  • Hádegisverður með víni og vatni í Gragnano
  • Sigling til og frá Capri og sigling umhverfis eyjuna
  • Fjallalest á Capri og hádegisverður með víni og vatni í Capri-bæ
  • Leiðsögn um Cori með staðarleiðsögumanni og íslenskum túlki
  • Vínsmökkun og léttur hádegisverður hjá vínframleiðanda nálægt Cori
  • Skoðunarferð um helstu kennileiti Rómar með íslenskri leiðsögn
  • Rómverskur hádegisverður með víni og vatni í nágrenni Vatíkansins
  • Íslensk fararstjórn

Aukagjald fyrir einstaklingsherbergi: 45.000 kr.

Staðfestingargjald: 60.000 kr.

Ekki innifalið

Aðgangur að söfnum, gistináttaskattur sem greiddur er á hótelum og annað sem ekki er tekið fram að sé innifalið.

Skilmálar og greiðslur

Staðfestingargjald er 60.000 kr. og er óafturkræft nema ferðinni verði aflýst. Lokagreiðsla þarf að berast 7 vikum fyrir brottför.

Sætaframboð í ferðina er takmarkað. Ferðaskrifstofan og fararstjórar áskilja sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.