Bestu golfvellirnir við Róm
10.–17. apríl 2027
8 dagar
Beint flug með Icelandair
Flug út
FI 930 · KEF 07:50 → FCO 14:35
Flug heim
FI 931 · FCO 15:45 → KEF 18:40
Gist er sjö nætur á fjögurra stjörnu spa-hóteli í nágrenni Vatíkansins. Milli golfhringja gefst tími til að njóta Rómar, með gönguferð um helstu kennileiti og sameiginlegum rómverskum hádegisverði.

Fararstjórar í Róm
Auk Guðjóns og Jóhönnu mun þrautreyndur golfari og golfferðalangur, Haukur Gíslason, sjá um golfupplifun ferðarinnar ásamt því að hafa umsjón með golfmótinu.
„Í þessari ferð til Rómar er markmiðið að sameina golf á úrvals völlum við það besta sem borgin hefur upp á að bjóða í mat og drykk. Dagskráin er sett saman með það að leiðarljósi að skapa þægilegt flæði og afslappaðan en fágaðan ramma, þar sem þátttakendur geta notið hvers augnabliks á vellinum sem og utan hans.“
Haukur Gíslason
Smelltu á dagana hér fyrir neðan til að skoða dagskrá ferðarinnar.
Dagur 1 Koma til Rómar Skoða dag Loka degi
Eftir komu á hótelið, fá gestir afhent herbergin sín og
í framhaldi er frjáls tími þar sem ferðalangar geta slakað á á hótelinu, sem er með spa aðstöðu, eða haldið út í borgina til að upplifa töfra Rómar.
Innifalið: Flutningur milli flugvallar og hótels.
Dagur 2 Marco Simone, Ryder Cup-völlurinn Skoða dag Loka degi
Fyrsti fjögurra manna hópurinn er með bókaðan rástíma klukkan 10:20 og síðan mun hver hópur fylgja í kjölfarið með tíu mínútna millibili.
Marco Simone Golf & Country Club er glæsilegur 18 holu golfvöllur rétt utan við Róm. Völlurinn er sérstaklega þekktur fyrir að hafa hýst Ryder Cup 2023, þar sem Evrópa sigraði Bandaríkin.
Hann liggur í fallegu, opnu landslagi með miklu útsýni yfir sveitirnar í kringum Róm og kastalann Castello di Marco Simone. Það sem einkennir völlinn eru breiðar brautir og stórir flatir, sem gefa ákveðið svigrúm, en djúpar glompur, vatnshindranir og vel staðsettar torfur gera völlinn krefjandi.
Marco Simone er fremur nútímalegur mótsvöllur en hefðbundinn rómverskur parklandvöllur. Hann hentar því sérstaklega vel kylfingum sem vilja prófa völl sem hefur hýst golfmót á hæsta alþjóðlega keppnisstigi.
Í stuttu máli þá er Marco Simone er vandaður, nútímalegur og krefjandi mótsvöllur, og Ryder Cup tengingin gerir hringinn sérstaklega áhugaverðan fyrir golfara sem sækjast eftir áskorun sem og einstakri upplifun.
Marco Simone er með nokkurn fjölda golfbíla. Fyrir þá sem það hafa í hyggju, þá væri ráðlegt að bóka þá með góðum fyrirvara.
Fararstjórar munu aðstoða áhugasama með það.
Kostnaðurinn við hvern golfbíl er um 50 - 60 EUR og greitt er fyrir þá á staðnum.
Fyrstu ráshóparnir munu geta haldið heim á hótel þegar þeir vilja að hring loknum, en ráðlegt er fyrir golfara að festa æskilegan heimferðartímann með nokkrum fyrirvara í samráði við fararstjóra.
Innifalið: Akstur til og frá golfvelli og vallargjald fyrir 18 holur.
Dagur 3 Country Club Castelgandolfo Skoða dag Loka degi
Fyrsti fjögurra manna hópurinn er með bókaðan rástíma klukkan 10:20 og síðan mun hver hópur fylgja í kjölfarið með tíu mínútna millibili.
Country Club Castelgandolfo er mjög sérstakur 18 holu golfvöllur um 23 km suður af miðborg Rómar, nálægt Castel Gandolfo í Albanóhæðunum. Völlurinn er hannaður af hinum þekkta bandaríska golfvallahönnuði Robert Trent Jones Sr. og liggur í gömlum eldfjallagíg, sem gefur honum mjög fallegt og óvenjulegt yfirbragð.
Völlurinn liggur innan um aldargamlar ólífu-, eikar- og furutré, vínvið, sítrustré og fjölbreyttan annan Miðjarðarhafsgróður. Klúbbhúsið er í 17. aldar villu sem var reist fyrir Flavio Chigi kardínála, frænda Alexanders páfa VII. Þaðan er frábært útsýni yfir nánast allan völlinn.
Í stuttu máli, þá er Castelgandolfo meira en bara góður golfvöllur. Umhverfið er hlaðið af sögu og golfvöllurinn sér á parti og í einstöku umhverfi þar sem falleg ítölsk sveit, eldfjallalandslag og saga Rómar renna saman í eitt.
Fyrir golfara er hann því mjög áhugaverður kostur, sérstaklega ef upplifunin skiptir ekki minna máli en sjálft golfið.
Castelgandolfo er með nokkurn fjölda golfbíla en fyrir þá sem það hafa í hyggju, þá væri ráðlegt að bóka þá með góðum fyrirvara.
Fararstjórar munu aðstoða áhugasama með það.
Kostnaðurinn við hvern golfbíl er 50 - 60 EUR og greitt er fyrir þá á staðnum.
Fyrstu ráshóparnir munu geta haldið heim á hótel þegar þeir vilja að hring loknum, en ráðlegt er fyrir golfara að festa æskilegan heimferðartímann með nokkrum fyrirvara í samráði við fararstjóra.
Innifalið: Akstur til og frá golfvelli og vallargjald fyrir 18 holur.
Dagur 4 Olgiata golfvöllurinn Skoða dag Loka degi
Fyrsti fjögurra manna hópurinn er með bókaðan rástíma klukkan 10:20 og síðan mun hver hópur fylgja í kjölfarið með tíu mínútna millibili.
Olgiata golfklúbburin við Róm er einn þekktasti og virtasti golfklúbbur Ítalíu. Völlurinn er í um 20 km fjarlægð frá miðborg Rómar og er staðsettur í grænu og rólegu umhverfi. Olgiata er
27 holu völlur sem skiptist í tvo 18 holu hringi, vestur- og austurvöllin sem hafa mjög ólíkan karakter.
Vesturvöllurinn er eldri og hefðbundnari völlur, hannaður árið 1961 af C. Kenneth Cotton og síðar endurhannaður af Jim Fazio. Austurvöllurinn var hannaður af Jim Fazio, opnaður 1982, og hann er meira krefjandi hvað varðar landslag og staðsetningu hindrana. Töluvert er um furutré, eik og annan Miðjarðarhafsgróður, auk náttúrulegs hæðarmismunar sem gefur þessum velli mikinn karakter.
Almennt reynir völlurinn mikið á staðsetningu upphafshöggs, vallarlestur og nákvæmni inn á flöt. Hann er ekki endilega langur miðað við nútímavelli en getur verið mjög krefjandi. Olgiata hefur margoft hýst stórmót, þar á meðal Italian Open, og er talinn einn af hinum klassískum keppnisvöllum Evrópu.
Í stuttu máli þá er Olgiata klassískur, fallegur og taktískur ítalskur golfvöllur þar sem náttúrulegt landslag, gömul tré og vel staðsettar hindranir skipta meira máli en lengdin. Hann hentar sérstaklega vel kylfingum sem kunna að meta hefðbundinn parkland-völl með miklinn karakter.
Olgiata er með nokkurn fjölda golfbíla en fyrir þá sem það hafa í hyggju, þá væri ráðlegt að bóka þá með góðum fyrirvara.
Fararstjórar munu aðstoða áhugasama með það.
Kostnaðurinn við hvern golfbíl er 50 - 60 EUR og greitt er fyrir þá á staðnum.
Fyrstu ráshóparnir munu geta haldið heim á hótel þegar þeir vilja að hring loknum, en ráðlegt er fyrir golfara að festa æskilegan heimferðartímann með nokkrum fyrirvara í samráði við fararstjóra.
Innifalið: Akstur til og frá golfvelli og vallargjald fyrir 18 holur.
Dagur 5 Frjáls dagur og gönguferð um Róm Skoða dag Loka degi
Á hótelinu er spa aðstaða fyrir áhugasama en einnig er tilvalið að nota tækifærið til að kynnast Rómaborg aðeins betur og þeim gersemum sem hún hefur upp á að bjóða í menningu og mat.
Vatíkanið og Péturskirkjan eru í um aðeins 15 mínútna göngufæri frá hótelinu.
Fararstjórar eru boðnir og búnir til að aðstoða ferðalanga eða ráðleggja varðandi það sem áhuga gæti vakið í borginni.
Fyrir áhugasama þá munu farastjórar bjóða upp á valkvæðan göngutúr um helstu kennileyti Rómar, frá elsta hluta borgarinnar og göngutúrinn mun enda á einni af merkari perlum barrokktímans, eða Piazza Navona.
Í framhaldi verður haldið á veitingastað í nágrenni við Vatíkanið þar sem boðið verður upp á hádegismat að rómverskum hætti, með víni og vatni.
Gönguferðin mun alls taka um 3 klukkutíma með smá stoppi á Piazza di Spagna.
Innifalið: Gönguferð um Róm og hádegisverður með víni og vatni.
Dagur 6 Roma Acquasanta Skoða dag Loka degi
Fyrsti fjögurra manna hópurinn er með bókaðan rástíma klukkan 10:20 og síðan mun hver hópur fylgja í kjölfarið með tíu mínútna millibili.
Circolo del Golf Roma Acquasanta er einn sögufrægasti golfvöllur Ítalíu og var stofnaður árið 1903, af hópi breskra og bandarískra diplómata. Hann er staðsettur við Via Appia, innan borgarmarka Rómar, og er oft talinn elsti golfvöllur Ítalíu. Um er að ræða 18 holu völl, par 71, og um 5.800–6.000 metra langur af gulum teigum.
Acquasanta er ekkert sérstaklega langur miðað við nútímavelli, en samt tæknilega krefjandi vegna mjórra brauta, hæðarmunar, blindra högga og lítilla, vel varinna flata. Mikið er af háum furutrjám, sýprustrjám og öðrum Miðjarðarhafsgróðri, sem gefur vellinum mjög sérstakt og fágað svipbragð.
Hápunktar eru meðal annars 7. holan, par 5 með útsýni að fornu rómversku vatnsveitunum, 11. holan, stutt en nákvæm par 3, og hin glæsilega 17. hola þar sem vatn gerir teighögg og annað högg sérstaklega spennandi. 18. holan er síðan upp í móti með glæsilegu útsýni að klúbbhúsinu.
Í stuttu máli, Acquasanta er ekki völlurinn sem maður fer á til að fá nútímalega „championship“ upplifun, heldur til að spila skemmtilegan og krefjandi golfvöll í einstaklega fallegu og sögulegu umhverfi.
Acquasanta er með nokkurn fjölda golfbíla en fyrir þá sem það hafa í hyggju, þá væri ráðlegt að bóka þá með góðum fyrirvara.
Fararstjórar munu aðstoða áhugasama með það.
Kostnaðurinn við hvern golfbíl er 50 - 60 EUR og greitt er fyrir þá á staðnum.
Fyrstu ráshóparnir munu geta haldið heim á hótel þegar þeir vilja að hring loknum, en ráðlegt er fyrir golfara að festa æskilegan heimferðartímann með nokkrum fyrirvara í samráði við fararstjóra.
Innifalið: Akstur til og frá golfvelli og vallargjald fyrir 18 holur.
Dagur 7 Golfmót á Marco Simone Skoða dag Loka degi
Við munum öll halda saman á völlinn í 6- 8 manna bílum og gera okkur klár í rólegheitunum.
Fyrsti fjögurra manna hópurinn verður ræstur út klukkan 10:20 og síðan mun hver hópur fylgja í kjölfarið með tíu mínútna millibili.
Þegar hver hópur hefur klárað sinn hring þá munum við geta slakað á saman í klúbbúsinu, þar til allir hópar hafa klárað, og stigin verið talin.
Eftir verðlaunaafhendingu höldum við heim á hótelið þar sem ferðalangar geta gert sig kláran fyrir síðasta kvöldið sitt í Róm.
Innifalið: Akstur til og frá golfvelli og vallargjald fyrir 18 holur.
Dagur 8 Heimferð Skoða dag Loka degi
Flugvöllurinn er í innan við 35 mínútna akstri frá hótelinu.
Brottför heim er áætluð kl. 15:45.
Innifalið: Flutningur milli flugvallar og hótels.
Innifalið og upplýsingar
Innifalið
- Beint flug með Icelandair til og frá Róm, 23 kg taska, innritað golfsett og 10 kg handfarangur
- Flutningur til og frá flugvellinum í Róm
- Morgunverður alla daga
- 7 nætur á 4 stjörnu spa-hóteli í nágrenni Vatíkansins
- Aðgangur að spa-svæði hótelsins, panta þarf tíma í afgreiðslu
- Akstur til og frá golfvöllum í 6–8 manna bílum samkvæmt ferðalýsingu
- Vallargjöld fyrir alla fimm 18 holu hringina samkvæmt ferðalýsingu
- Skoðunarferð um helstu kennileiti Rómar og hádegisverður með víni og vatni
- Íslensk fararstjórn
Aukagjald fyrir einstaklingsherbergi: 90.000 kr.
Staðfestingargjald: 60.000 kr.
Ekki innifalið
Skilmálar og greiðslur
Ferðaskrifstofan og fararstjórar áskilja sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.

