Aðventuferð til Rómar 2026
1.–6. desember 2026
6 dagar
Beint flug með Icelandair
Flug út
FI 930 · KEF 08:20 → FCO 14:00
Flug heim
FI 931 · FCO 11:25 → KEF 15:30
Upplifðu Róm á aðventunni með fólki sem þekkir borgina. Við dveljum á fjögurra stjörnu hóteli skammt frá Vatíkaninu og njótum sögu, menningar og ítalskrar matargerðar.
Í dagskránni eru gönguferðir um þekkt kennileiti, heimsókn í Péturskirkjuna, ítalskur hádegisverður og smakk í gyðingahverfinu. Jafnframt gefst góður tími til að njóta borgarinnar á eigin vegum.
Í dagskránni eru gönguferðir um þekkt kennileiti, heimsókn í Péturskirkjuna, ítalskur hádegisverður og smakk í gyðingahverfinu. Jafnframt gefst góður tími til að njóta borgarinnar á eigin vegum.
Smelltu á dagana hér fyrir neðan til að skoða dagskrá ferðarinnar.
Dagur 1 Ferðadagur beint flug til Rómar Skoða dag Loka degi
Brottför í beinu flugi með Icelandair kl. 08:20 og áætluð lending í Róm kl. 14:00. Við söfnumst saman á flugvellinum og 6–7 manna bílar aka okkur beint á glæsilegt fjögurra stjörnu hótel í Róm, skammt frá Vatíkaninu, þar sem við dveljum næstu fimm nætur.
Eftir komu fá gestir herbergin sín og síðan er frjáls tími til að slaka á í spa-aðstöðu hótelsins eða halda út í borgina til að upplifa töfra Rómar.
Eftir komu fá gestir herbergin sín og síðan er frjáls tími til að slaka á í spa-aðstöðu hótelsins eða halda út í borgina til að upplifa töfra Rómar.
Dagur 2 Kennileiti og söguslóðir Rómar Skoða dag Loka degi
Eftir morgunverð leggjum við af stað frá hótelinu kl. 09:00 í 6–7 manna bílum sem flytja okkur þangað sem gönguferðin hefst. Fararstjórar leiða okkur um mörg þekktustu kennileiti Rómarborgar.
Gönguferðinni lýkur á Piazza Navona um kl. 13:00. Síðan er frjáls tími til að njóta síðdegisins og kvöldsins í þessari yndislegu borg.
Gönguferðinni lýkur á Piazza Navona um kl. 13:00. Síðan er frjáls tími til að njóta síðdegisins og kvöldsins í þessari yndislegu borg.
Innifalið: Akstur í skoðunarferð og gönguleiðsögn
Dagur 3 Péturskirkjan og rómverskur hádegisverður Skoða dag Loka degi
Eftir morgunverð höldum við saman til Péturskirkjunnar. Þau sem vilja fremur heimsækja Vatíkansafnið geta nýtt tímann í það, en ráðlagt er að bóka með góðum fyrirvara.
Péturskirkjan geymir ógrynni safngripa og menningarverðmæta. Einnig er hægt að fara upp í hvelfinguna og njóta útsýnis yfir Róm eða fara í hvelfingarnar fyrir neðan.
Hópurinn sameinast á veitingastað í nágrenni Vatíkansins um kl. 13:30 og borðar síðbúinn hádegisverð með veigum. Eftir hádegisverðinn er frjáls tími.

Innifalið: Heimsókn í Péturskirkjuna og ítalskur hádegisverður með víni og vatni
Dagur 4 Frjáls dagur í Róm Skoða dag Loka degi
Fátt er yndislegra en að rölta um götur Rómar í rólegheitum. Borgin býður upp á einstaka blöndu af sögu, menningu og notalegu andrúmslofti.
Rölta má stefnulaust um miðborgina, fara á söfn eða sitja á fallegu torgi og njóta mannlífsins. Verðlagið er almennt hagstætt og oft hægt að gera góð kaup. Róm er full af fallegum byggingum, líflegum torgum og notalegum veitingastöðum þar sem auðvelt er að slaka á og upplifa rómverskan lífsstíl.

Dagur 5 Gyðingahverfið og Trastevere Skoða dag Loka degi
Eftir morgunverð er frjáls tími. Um kl. 16:00 geta þau sem vilja hitt fararstjóra á fyrirfram ákveðnum stað á Campo de’ Fiori. Þaðan göngum við um gyðingahverfið og kynnumst merkri sögu þess og áhrifum matarhefða íbúanna á matarmenningu Rómar og Ítalíu.
Við stoppum til að smakka á kræsingum og upplifa með eigin bragðlaukum matinn sem einkennir hverfið. Síðan höldum við yfir Tíber til Trastevere, með þröngum götum og fjölbreyttum verslunum og veitingastöðum.
Göngunni lýkur á torgi heilagrar Maríu í Trastevere um kl. 17:30. Síðan er frjáls tími.

Innifalið: Gönguleiðsögn og smakk á réttum og drykkjum í gyðingahverfinu
Dagur 6 Heimferð Skoða dag Loka degi
Eftir snemmbúinn morgunverð höldum við til Fiumicino-flugvallar um kl. 08:00 í 6–7 manna bílum. Brottför heim með Icelandair er áætluð kl. 11:25.
Innifalið og upplýsingar
Verð á mann
249.000 kr.
miðað við tvo í herbergi
Innifalið
- Beint flug með Icelandair til Rómar, 23 kg taska, 10 kg handfarangur og lítill bakpoki
- Akstur milli Fiumicino-flugvallar og hótels í Róm
- Akstur í skoðunarferð um Róm á degi 2
- Fimm nætur á fjögurra stjörnu hóteli skammt frá Vatíkaninu, með spa-aðstöðu
- Morgunverður alla daga
- Skoðunarferð um helstu kennileiti og sögustaði Rómar með íslenskri leiðsögn
- Gönguferð um gyðingahverfið til Trastevere með íslenskri leiðsögn
- Smakk á réttum og drykkjum í gyðingahverfinu
- Heimsókn í Péturskirkjuna
- Ítalskur hádegisverður með víni og vatni í nágrenni Vatíkansins
- Íslensk fararstjórn
Aukagjald fyrir einstaklingsherbergi: 45.000 kr.
Staðfestingargjald: 50.000 kr.
Ekki innifalið
Aðgangur að söfnum, gistináttaskattur sem greiddur er á hóteli og annað sem ekki er tekið fram að sé innifalið.
Skilmálar og greiðslur
Staðfestingargjald er 50.000 kr. og er óafturkræft nema ferðinni verði aflýst. Lokagreiðsla þarf að berast 7 vikum fyrir brottför.
Sætaframboð í ferðina er takmarkað. Ferðaskrifstofan og fararstjórar áskilja sér rétt til að breyta áætlun ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
Sætaframboð í ferðina er takmarkað. Ferðaskrifstofan og fararstjórar áskilja sér rétt til að breyta áætlun ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.