top of page
perugia-italy-piazza-iv-novembre-on-sunrise-2024-10-16-12-17-18-utc.jpg

Dekurferð til Marche, Umbria & Róm

28. maí - 4. júní 2025

Örfá sæti laus

Screenshot 2024-11-14 at 10.14.38.png

Ferðin er skipulögð í samstarfi við ferðaskrifstofuna 500 Viaggi s.r.l. 

500 viaggio.jpg
beautiful-castle-in-spoleto-umbria-in-italy-2023-11-27-04-50-53-utc.jpg
_TER0986.jpg

Dagur 1.

Ferðadagur

Brottför í beinu flugi með Icelandair kl. 07:50 með áætlaða lendingu í Róm kl. 14:25.

Fararstjórar munu fylgja hópnum í rútuna, sem bíður á flugvellinum.  Þaðan verður haldið áfram á hótelið Borgo Lanciano og mun ferðin taka um 3 klst.

Leiðin þangað er falleg og fjölbreytt og stutt stopp verður gert á leiðinni. Eftir komu á hótelið, munu gestir fá afhenda lykla að herbergjunum og í framhaldi getað slakað á í fallegu umhverfi.

Mjög góður veitingastaður er á hótelinu.

Dagur 2.

Spa dagur og hádegisverður uppi í fjöllum Sibillini

Eftir morgunverð er frjáls tími en boðið verður upp á dekurdagur á Spa svæði hótelsins.

Upp úr hádegi ökum við svo stuttan spöl til veitingastaðar uppi í hæðum Sibillini þjóðgarðsins, þar sem við munum njóta hádegisverðar á ítalska vísu.

Eftir hádegisverð, verður frjáls tími.

_TER1657.jpg
IMG_1478.jpeg
san-marino-medieval-tower-on-a-rocky-cliff-and-pa-2023-11-27-05-27-16-utc.jpg
IMG_1523_edited.jpg

Dagur 3.

Fríríkið San Marino

Eftir morgunverð verður haldið til fríríkissins San Marino sem stendur á tindi fjallsins Titano.

 

Stutt skoðunarferð verður í boði um helstu kennileiti en frjáls tími mun gefast til að versla og snæða hádegisverð eins og hentar.

Á heimleiðinni verður farið í vínsmökkun. Þar mun okkur gefast tækifæri til að bragða á nokkrum af helstu vínum Marche - héraðsins eins og hvítvíninu Verdicchio og rauðvíninu Rosso Conero.

Dagur 4.

Skoðunarferð um miðaldabæina Assisi & Gubbio

Eftir mörgunverð munum halda til bæjarins Assisi

sem er frægur fyrir að vera fæðingastaður heilags Fransis.

 

Við munum fara í stutta skoðunarferð um bæinn sem og í Dómkirkju heilags Fransis. Kirkjan er í gotneskum stíl og á margan hátt algjörlega einstök, verandi skreytt freskum eftir Giotto og Cimabue.

Um klukkan 15:00 munum við svo halda áleiðis til Gubbio, sem er miðaldabær í Umbria, í hæðum fjallsins Ingino.

 

Bærinn er rómaður fyrir einstaka byggingarlist, mikilvægar fornleifar og hina árlegu miðaldarhátíð La corsa dei ceri.

 

Við munum fara upp á tind Ingino með kláfi og njóta einstaks útsýnis yfir fagrar sveitir Umbria. 

Gubbio.jpg
basilica-in-assisi-umbria-italy-2023-11-
Conero spiaggia.jpg
Spiaggia Eugenio.jpg

Dagur 5.

Strandaferð til Adríahafsins

Eftir morgunverð er ferðinni heitið til einnar af fegurstu ströndum Adríahafsins við bæina Sirolo & Numana.

 

Deginum verður varið á ströndinni, sem er í rétt rúman klukkustunda akstur frá hótelinu. 

Eftir ströndina verður boðið upp á vín og ólívuolíusmökkun í einni helstu vínbúð svæðisins.

Eftir að heim á hótel er komið er hægt að borða á hótelinu eða fara á einn af skemmtilegu veitingastöðunum í þorpinu Castelraimondo, sem er skammt frá.

Dagur 6.

Haldið til Rómar!

Eftir morgunverð kveðjum við Borgo Lanciano og höldum til Rómar. Áætlaður komutími þangað er um kl. 13.30.

Árið 2025 er hið heilaga ár í Róm skv. kaþólskri kirkju. Rómarborg mun skarta sínum fegursta skrúða þetta árið og því einstakt tækifæri til að upplifa borgina eilífu á þessum tíma.

Eftir að hafa komið töskunum okkar fyrir á hótelinu mun fólk hafa frjálsan tíma til að njóta borgarinnar eilífu.

Hér fyrir neðan er hlekkur á hótelið okkar í Róm, Mama Shelter, sem er glæsilegt og mjög vinsælt 4 stjörnu hótel með nokkrum veitingastöðum, Spa aðstöðu, þakbar og mjög skemmtilegu útisvæði.

spanish steps II.jpg
loving-couple-walking-on-the-street-of-rome-italy-2023-11-27-05-30-33-utc.jpg

Dagur 7.

colosseum-at-sunrise-in-rome-2024-10-11-05-36-10-utc.jpg

Skoðunarferð um Róm & ítalskur hádegisverður við Vatíkanið

Eftir morgunverð verður boðið upp á skoðunarferð með fararstjórum um mörg af þekktustu kennileitum Rómarborgar.

Skoðunarferðinni lýkur í sameiginlegum hádegisverði á veitingastað í nágrenni við Péturskirkjuna. Þar munum við njóta saman dýrindis veiga á rómverska vísu.

Í framhaldi verður frjáls tími til að njóta eftirmiðdagsins og kvöldsins í þessari yndislegu borg.

Pantheon II.jpg
rome-italy-man-training-on-kayak-near-aelian-bri-2023-11-27-05-27-22-utc (1).jpg

Dagur 8.

Ferðadagur

Ferðadagur. Eftir morgunverð, er frjáls tími, en ekki þarf að afhenda herbergin fyrr en kl. 12:00 á hádegi.

VIð höldum síðan af stað áleiðis til Fiumicino-flugvallarins, en þangað er aðeins um 30 - 40 mínútna akstur.

Brottför heim er áætluð kl. 15:55.

Departure.jpg

Innifalið í verði:

Verð ferðar er 329.000 þús á mann. m.v. 2 í herbergi. Fyrir þá sem vilja vera í sér herbergi bætast 62.000 þúsund krónur við. Innifalið: Beint flug með Icelandair til Rómar ásamt 23 kg. tösku og 10 kg. handfarangri. Rútuferðir skv. ferðalýsingu. Morgunverður alla daga. 5 nætur á Borgo Lanciano, 4 stjörnu Spa hóteli í þjóðgarðinum Sibillini í Marche. 2 nætur á 4 stjörnu hóteli í Róm Dagur á Spa svæði hótelsins í Marche, og langur hádegisverður uppi í hæðum þjóðgarðsins. Aðgangur að Spa og útisvæðum á hótelinu Róm. Skoðunarferð til fríríkissins San Marino og vínsmökkun. Skoðunarferð til Assisi, fæðingarbæjar heilags Fransis, verndara Ítalíu. Skoðunarferð til Gubbio í Umbria Strandarferð til Numana við Conero - ströndina, ásamt vín og ólívuolíusmökkun. Skoðunarferð um helstu kennileiti Rómar ásamt hádegisverði í nágrenni við Vatíkanið. Íslensk fararstjórn. Fjöldi þátttakenda mun takmarkast við aðeins 28 manns. Lágmarks fjöldi þátttakenda í ferð er 20 manns. Ekki innfalið: Aðangur að söfnum, gistináttaskattur sem greiddur er á hóteli, aðgangur að Spa svæði hótelsins þá daga sem ferðir eru í boði, strandabekkir í Numana og annað sem ekki er tekið fram að sé innifalið. Annað: Staðfestingargjald er 50.000 kr. og er óafturkræft nema að ferðinni verði aflýst. Lokagreiðsla þarf að berast fyrir 6 - 8 vikum fyrir brottför. Greitt er beint til 500 Viaggi s.r.l. Nákvæmar upplýsingar varðandi erlenda millifærslu verða sendar til þeirra þátttakenda sem skrá sig í ferðina. Ferðaskrifstofan / fararstjórar áskilja sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjánlegar aðstæður gefa tilefni til.

Skráðu þig í ferðina hér!

Vinsamlega tilgreinið fjölda einstaklinga sem verið er að skrá.

bottom of page